Skilmálar og skilyrði Sixpensari.is
1. Almennar upplýsingar
Sixpensari.is er íslensk netverslun sem selur höfuðföt, töskur, belti, hanska og tengdar vörur.
Rekstraraðili Sixpensari.is er XICE ehf.
Kennitala: 490721-1260
Netfang: verslun@xice.is
Með því að versla á Sixpensari.is samþykkir viðskiptavinur skilmála þessa.
2. Verð og greiðslur
Öll verð á Sixpensari.is eru birt í íslenskum krónum (ISK) og með virðisaukaskatti, nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Sendingarkostnaður er birtur áður en kaup eru staðfest.
Greiðslur fara fram með þeim greiðsluleiðum sem í boði eru hverju sinni á vefnum.
Sixpensari.is áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara.
3. Pöntun og staðfesting
Við móttöku pöntunar fær viðskiptavinur sjálfvirka staðfestingu með tölvupósti.
Sixpensari.is áskilur sér rétt til að hafna eða fella niður pöntun ef upp kemur augljós villa í verði, vörulýsingu, birgðastöðu eða öðrum upplýsingum á vefnum.
Komi slík villa í ljós verður viðskiptavinur upplýstur eins fljótt og auðið er og honum boðið að staðfesta pöntun með leiðréttum upplýsingum eða hætta við kaupin án kostnaðar.
4. Afhending
Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og auðið er eftir að greiðsla hefur borist.
Áætlaður afhendingartími innanlands er að jafnaði 1–5 virkir dagar en getur verið breytilegur eftir álagi, staðsetningu eða þjónustu flutningsaðila.
Sixpensari.is ber ekki ábyrgð á töfum sem rekja má til flutningsaðila eða annarra aðila utan stjórnar fyrirtækisins.
5. Skilaréttur
Viðskiptavinur hefur rétt til að falla frá kaupum innan 14 daga frá móttöku vöru í samræmi við lög um neytendasamninga.
Vara skal vera ónotuð, í upprunalegu ástandi og með öllum merkimiðum.
Af hreinlætis- og öryggisástæðum áskilur Sixpensari.is sér rétt til að hafna skilum á vörum sem hafa verið notaðar, bera merki um notkun eða þar sem merkimiðar hafa verið fjarlægðir.
Viðskiptavinur ber kostnað af skilasendingu nema um gallaða eða ranga vöru sé að ræða.
Tilkynningar um skil skulu sendar á verslun@xice.is.
6. Endurgreiðslur
Þegar skilavara hefur verið móttekin og yfirfarin verður endurgreiðsla framkvæmd eins fljótt og auðið er og að jafnaði innan 14 daga.
Endurgreitt er með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin nema annað sé sérstaklega samið um.
7. Gölluð eða röng vara
Ef vara reynist gölluð eða röng við afhendingu skal viðskiptavinur hafa samband við Sixpensari.is eins fljótt og kostur er.
Um réttindi neytenda vegna galla gilda lög um neytendakaup nr. 48/2003, eftir því sem við á.
Viðskiptavinur getur átt rétt á viðgerð, nýrri vöru, afslætti eða endurgreiðslu samkvæmt ákvæðum laganna.
8. Gjafakort
Gjafakort sem gefin eru út af Sixpensari.is eru nothæf sem greiðsla fyrir vörur í netversluninni.
Gjafakort eru ekki innleysanleg í reiðufé og fást ekki endurgreidd að neinu leiti.
Glatað eða stolið gjafakort fæst almennt ekki endurútgefið nema hægt sé að staðfesta eignarhald og stöðu þess.
9. Persónuvernd
Sixpensari.is vinnur persónuupplýsingar í samræmi við gildandi persónuverndarlög.
Persónuupplýsingar eru eingöngu notaðar til að afgreiða pantanir, sinna þjónustu við viðskiptavini og uppfylla lagaskyldur.
Nánari upplýsingar er að finna í persónuverndarstefnu vefsins.
10. Takmörkun ábyrgðar
Sixpensari.is ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til rangrar notkunar vara eða atvika sem fyrirtækið hefur ekki stjórn á.
Ábyrgð Sixpensari.is takmarkast að hámarki við verðmæti þeirrar vöru sem keypt var, nema lög mæli fyrir um annað.
11. Óviðráðanleg atvik (Force Majeure)
Sixpensari.is ber ekki ábyrgð á töfum eða vanefndum sem rekja má til atvika utan stjórnar fyrirtækisins, svo sem náttúruhamfara, verkfalla, farsótta, stríðsátaka, rafmagnsleysis, truflana í fjarskiptum eða annarra sambærilegra atvika.
12. Lög og ágreiningur
Um skilmála þessa og viðskipti samkvæmt þeim gilda íslensk lög.
Komi upp ágreiningur skulu aðilar leitast við að leysa hann með samkomulagi.
Takist það ekki getur neytandi leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa eða eftir atvikum borið mál undir íslenska dómstóla.
